Kjarnafæði Norðlenska
Stærsta kjötvinnslufyrirtæki landsins
Veldu gæði
Veldu Kjarnafæði
Norðlenska matborðið ehf. er eitt stærsta og öflugasta framleiðslufyrirtæki landsins á sviði kjötvöru. Norðlenska er með starfsstöðvar á Akureyri, Húsavík og í Reykjavík. Á Akureyri eru höfuðstöðvar fyrirtækisins, stórgripasláturhús og kjötvinnsla, á Húsavík er sauðfjársláturhús og kjötvinnsla og að Stórhöfða 23 í Reykjavík er söluskrifstofa.
Norðlenska varð til þann 1. júlí árið 2000 er Kjötiðnaðarstöð KEA og Kjötiðjan Húsavík sameinuðust. Í júlímánuði 2001 festi Norðlenska matborðið kaup á þrem kjötvinnslum Goða hf.