Mánaðartilboð
Eldaðar Lambabollur frá Kjarnafæði
Lambabollurnar eru frystivara og eru seldar í 5 kg sölueiningum.
Kartöflusalat
- 200 g soðnar nýjar íslenskar kartöflur, skornar í tvennt
- 1/2 rauðlaukur, skorinn í bita
- 1/4 gul paprika, skorin í bita
- 2 msk grænt pestó
- 1-2 blöð nýtt grænkál, stiklur fjarlægður og skorið gróft
- Salt og pipar að smekk
Aðferð
- Blandið öllu vel saman í skál
Hrásalat
- 1/5 nýtt hvítkál, fínt sneitt
- 2-3 nýjar gulrætur, rifnar á grófu rifjárni
- 1/2 grænt epli, rifið á grófu rifjárni
- 2 msk majónes
- 1 msk sýrður rjómi 18%
- 2 tsk barbeque sósa
- 1 tsk Dijon sinnep
- 1 tsk hunang
- 1 tsk hvítvínsedik
- Salt og pipar að smekk
Aðferð
- Setjið sneidda hvítkálið, rifnu gulræturnar og rifna græna eplið í skál
- Hrærið restinni vel saman og hellið yfir kálið, gulræturnar og eplið
- Blandið öllu vel saman
Chili Majónes
- 1 dl majónes
- 2 msk sweet chili sósa
- 1 msk tómatsósa
- 1 tsk sítrónusafi
- 1 tsk hunang
- Salt og pipar að smekk
Aðferð
- Hrærið öllu vel saman
- Ef vilji er til að hafa sósuna enn sterkari má setja smávegis af Shiracha sósu að smekk







