Stefnur
Jafnlaunastefna
Tilgangur og gildissvið (English below)
Jafnlaunastjórnunarkerfi nær til alls starfsfólks. Starfsmaður er sá sem hefur gildandi ráðningarsamband við Kjarnafæði Norðlenska ehf. Kerfið nær ekki til verktaka né þeirra sem vinna tilfallandi tímavinnu.
Jafnlaunastefna
Laun hjá Kjarnafæði Norðlenska ehf. eru greidd skv. kjarasamningum eða sérstökum ráðningarsamningum við einstaka starfsmenn. Launaákvarðanir eru teknar af mannauðstjóra í samvinnu við viðkomandi yfirmann og byggðar á ítarlegri starfaflokkun sem liggur til grundvallar jafnlaunastjórnunarkerfi þar sem tekið er tillit til þeirra krafna sem störf gera. Stjórnendur skuldbinda sig til að gæta jafnréttis í launaákvörðunum sbr. lög nr. 150/2020 og skal öllum kynjum greidd jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Komi í ljós óútskýrður launamunur skal hann leiðréttur og unnið stöðugt að því að hann sé ekki til staðar.
Mannauðstjóri er fulltrúi stjórnenda varðandi jafnlaunastjórnunarkerfi og er ábyrgur fyrir viðhaldi þess í samræmi við staðalinn ÍST 85. Til að viðhalda launajafnrétti skuldbindur Kjarnafæði Norðlenska ehf. sig til að:
- Viðhalda vottuðu jafnlaunastjórnunarkerfi samkvæmt staðlinum ÍST 85.
- Fylgja viðeigandi lögum og reglum sem eru í gildi á hverjum tíma sem eiga við um jafnlaunakerfið og meta hlítingu.
- Framkvæma launagreiningu árlega þar sem borin eru saman sömu eða jafnverðmæt störf til að ganga úr skugga um hvort óútskýrður kynbundinn launamunur sé til staðar. Til greiningar eru grunnlaun og viðbótargreiðslur fyrir allt starfsfólk.
- Framkvæma innri úttekt árlega.
- Halda rýni stjórnenda árlega þar sem jafnlaunamarkmið eru sett fram og rýnd.
- Bregðast við frábrigðum með stöðugum umbótum.
- Kynna árlega jafnlaunastefnu og niðurstöður launagreiningar sem er til úttektar á starfsmannafundi.
- Hafa stefnuna aðgengilega á heimasíðum Kjarnafæðis Norðlenska ehf.
Jafnlaunastefna er jafnframt launastefna Kjarnafæði Norðlenska ehf. Erindi varðandi jafnlaunastjórnunarkerfið skulu berast til mannauðsstjóra.
English
Purpose
The equal pay management system covers all employees. An employee is a person who has a current employment relationship with Kjarnafæði Norðlenska ehf. The system does not cover contractors or those who work irregularly.
Equal pay policy
Salary at Kjarnafæði Norðlenska ehf. are paid according to wage agreements with unions or special employment contracts with individual employees. The Human Resources Manager is responsible for salary decisions in collaboration with the relevant manager and bases these decisions on a detailed job classification that forms the basis of the equal pay management system. Managers are obliged to ensure equality in wage decisions, cf. Act no. 150/2020 and all genders shall be paid equal wages for the same or equivalent jobs. If an unexplained wage difference is discovered, it must be corrected and managers work constantly to ensure that this does not exist.
The Human Resources Manager represents the management regarding the equal pay management system and is responsible for its maintenance in accordance with the standard ÍST 85. In order to maintain equal pay, Kjarnafæði Norðlenska ehf. will:
- Implement a certified equal pay management system according to the ÍST 85 standard, document and maintain.
- Follow the relevant laws and regulations valid at any given time that apply to the equal pay system and evaluate compliance.
- Carry out an annual wage analysis comparing the same or equivalent jobs to determine whether there is an unexplained gender pay gap. Basic salaries and additional payments are the basis for the analysis for all employees.
- Perform internal audits annually.
- Hold annual management reviews where equal pay targets are set and reviewed.
- Respond to anomalies with continuous improvement.
- Introduce an annual equal pay policy and the results of a wage analysis that is audited at a staff meeting.
- Have the policy available on Kjarnafæði Norðlenska´s websites.
Equal pay policy is also the wage policy of Kjarnafæði Norðlenska ehf. Errands regarding the equal pay management system should be sent to the human resources manager.
Útgáfudagur 06.02.2025
Ágúst Torfi Hauksson forstjóri
Jafnréttisáætlun
Leiðarljós
Að Kjarnafæði Norðlenska ehf. og dótturfélög þess séu eftirsóttur vinnustaður þar sem jafnrétti og jafnræði kynjanna er virt og að kynin hafi jöfn tækifæri á öllum sviðum.
Smellið hér til að lesa jafnréttisáætlun Kjarnafæðis Norðlenska
Persónuverndarstefna
Vefsíðan kn.is meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar sem rekja má beint eða óbeint til tiltekins einstaklings. Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki persónu-upplýsingar.
Í þeim tilfellum þar sem persónuupplýsingar eru skráðar t.d. vegna fyrirspurna, beiðna eða starfsumsókna, þar sem þú þarft að skrá nafn þitt, heimilisfang, tölvupóstfang eða aðrar persónutengdar upplýsingar, skuldbindur KN sig til þess að varðveita framangreindar upplýsingar á öruggan og tryggan hátt og mun ekki miðla áfram upplýsingum sem skráðar hafa verið til þriðja aðila án samþykkis viðkomandi aðila eða í kjölfar dómsúrskurðar.
Við heimsókn á vefsíðu okkar eru skráðar ýmsar nauðsynlegar upplýsingar um aðgengi og notkun. Þessar upplýsingar kunna að innihalda IP-tölur notanda. Þessum upplýsingum er einungis safnað af öryggisástæðum og fyrir bilanagreiningu. Þessi síða notar einnig vafrakökur fyrir nauðsynlega virkni, söfnun tölfræðiupplýsinga og fyrir deilingu á samfélagsmiðla, sjá nánar í vafrakökustefnu
Vinnsla gagna fer fram svo lengi sem notandi lýsir ekki andstöðu sinni við meðferð upplýsinganna. Ef notandi óskar eftir að koma athugasemdum um meðhöndlun persónuupplýsinga á framfæri eða óskar eftir að persónuupplýsingum sínum verði eytt úr grunninum, skal athugasemdum komið til Kjarnafæði í tölvupósti á kjarnafaedi@kjarnafaedi.is.
Vinnsluaðilar sem vefsíðan notar og eru nauðsynlegir fyrir eðlilega virkni:
- Amazon AWS cloud hosting - vefhýsing (Privacy Shield vottað). Persónuverndarstefna
- Bugsnag - Villumeðhöndlun (Privacy Shield vottað). Persónuverndarstefna
- New Relic - eftirlit með álagi og umferð vefþjóna (Privacy Shield vottað). Persónuverndarstefna
Vinnsluaðilar sem vefsíðan notar fyrir tölfræðilegar upplýsingar og deilingu á samfélagsmiðlum:
- Google Analytics - Umferð og tölfræðiupplýsingar (Privacy Shield vottað). Persónuverndarstefna
Kjarnafæði áskilur sér rétt til að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er. Við látum vita af slíkum breytingum á heimasíðunni kjarnafaedi.is.
Reglur um uppljóstrun
Lög nr. 40/2020 um vernd uppljóstrara tóku gildi 1. janúar 2021. Markmið laganna er að stuðla að því að upplýst verði um lögbrot og aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi fyrirtækja og þar með dregið úr slíku hátterni. Fyrirtæki með yfir 50 starfsmenn þurfa að setja sér reglur um það verklag sem þessu fylgir og þar að leiðandi hefur Kjarnafæði Norðlenska sett sér eftirfarandi reglur.
Viljum við ítreka að heimild með ytri uppljóstrun til fjölmiðla er einungis heimil í undantekningartilfellum og í samræmi við ströng skilyrði sem útlistuð eru hér að neðan í samræmi við 3. gr. laga nr. 40/2020 og veitir starfsmönnum ekki vernd frá skaðabótaábyrgð ef uppljóstrun á ekki við rök að styðjast. Almenna reglan sem nýju lögin ganga út frá er að uppljóstrun eigi sér stað til næsta yfirmanns/starfsmanns eða til opinbers eftrilitsaðila.:
Reglur Kjarnafæðis Norðlenska hf og dótturfélaga um verklag við uppljóstrun starfsmanna um lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi
Skilgreiningar
Með innri uppljóstrun er átt við að starfsmaður greinir frá upplýsingum eða miðli gögnum í góðri trú um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi vinnuveitenda síns til aðila innan fyrirtækisins eða til opinbers eftirlitsaðila.
Með ytri uppljóstrun er átt við að starfsmaður greini frá upplýsingum eða miðli gögnum í góðri trú um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi vinnuveitenda síns til aðila utan fyrirtækisins, til dæmis fjölmiðla. Ytri uppljóstrun er að jafnaði ekki heimil nema innri uppljóstrun hafi fyrst verið reynd til þrautar.
Með góðri trú er átt við að starfsmaður hafi góða ástæðu til að telja gögnin eða upplýsingarnar sem miðlað er réttar, það sé í þágu almennings að miðla þeim og að hann eigi ekki annan kost til að koma í veg fyrir þau brot eða þá háttsemi sem um ræðir.
Með ámælisverðri háttsemi er átt við hátterni sem stefnir almannahagsmunum í hættu, til dæmis hátterni sem ógnar heilsu eða öryggi fólks eða umhverfi, án þess að um sé að ræða augljóst brot á lögum eða reglum.
Starfsmaður í skilningi reglna þessara er sá sem hefur aðgang að upplýsingum eða gögnum um starfsemi vinnuveitanda vegna hlutverks síns, þar með talinn ráðinn, settur, skipaður, sjálfstætt starfandi verktaki, stjórnarmaður, starfsnemi, tímabundinn starfsmaður og sjálfboðaliði. Starfsmaður nýtur verndar samkvæmt ákvæðum laga um vernd uppljóstrara, eftir að hlutverki hans lýkur.
Málsmeðferð
Starfsfólki Kjarnafæðis Norðlenska hf. og dótturfélaga þess er heimilt að greina frá upplýsingum eða miðla gögnum í góðri trú um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi fyrirtækisins til aðila innan þess sem stuðlað getur að því að látið verði af eða brugðist við hinni ólögmætu eða ámælisverðu háttsemi. Móttakanda upplýsinganna eða gagnanna er skylt að stuðla að því að látið verði af hinni ólögmætu eða ámælisverðu háttsemi eða brugðist á annan hátt við henni. Móttakandi upplýsinganna skal greina starfsmanninum frá því hvort upplýsingarnar hafi orðið honum tilefni til athafna og þá hverra innan 60 daga.
Bregðist viðkomandi aðili ekki við innan 60 daga er starfsfólki heimilt að leita með málið til lögregluyfirvalda eða annarra opinberra eftirlitsaðila sem við eiga, t.d. umboðsmanns Alþingis, ríkisendurskoðanda og Vinnueftirlitsins svo fremi sem starfsmaðurinn hefur réttmæta ástæðu til að ætla að um háttsemi sé að ræða sem getur varðað fangelsisrefsingu.
Móttakandi upplýsinga eða gagnanna skal gæta leyndar um persónuupplýsingar sem honum berast um þann sem miðlar upplýsingum eða gögnum nema hinn síðarnefndi veiti afdráttarlaust samþykki sitt fyrir því að leynd sé aflétt.
Ytri uppljóstrun – reglur og skilyrði
Í algjörum undantekningartilvikum þegar miðlun skv. framangreindu kemur af gildum ástæðum ekki til greina er miðlun til utanaðkomandi aðila heimil án þess að innri uppljóstrun hafi átt sér stað.
Skilyrði er að miðlunin teljist í þágu svo brýnna almannahagsmuna að hagsmunir vinnuveitanda eða annarra verða að víkja fyrir hagsmunum af því að upplýsingum sé miðlað til utanaðkomandi aðila, svo sem til að vernda:
- öryggi ríkisins eða hagsmuni ríkisins á sviði varnarmála
- efnahagslega mikilvæga hagsmuni ríkisins
- heilsu manna
- umhverfið
Vernd
Miðlun upplýsinga eða gagna að fullnægðum skilyrðum ákvæða laga nr 40/2020 um vernd uppljóstrara, telst ekki brot á þagnar- eða trúnaðarskyldu sem starfsmaðurinn er bundinn af samkvæmt lögum eða með öðrum hætti. Slík miðlun leggur hvorki refsi- né skaðabótaábyrgð á viðkomandi og getur ekki leitt til stjórnsýsluviðurlaga eða íþyngjandi úrræða að starfsmannarétti.
Óheimilt er að láta starfsmann sæta óréttlátri meðferð sem miðlað hefurupplýsingum eða gögnum samkvæmt ákvæðum laga um vernd uppljóstrara. Til slíkrar meðferðar telst til dæmis að rýra réttindi, breyta starfsskyldum á íþyngjandi hátt, segja upp samningi, slíta honum eða láta hvern þann sem miðlað hefur gögnum eða upplýsingum gjalda þess á annan hátt. Brot á því getur varðað sektum eða fangelsi allt að tveimur árum.
Komi til ágreinings fyrir dómi um stöðu starfsmanns með tilliti til hvort miðlun hafi verið óheimil eða að starfsmaður er látinn sæta óréttlátri meðferð í kjölfar hennar skal veita starfsmanninum gjafsókn í héraði, fyrir Landsrétti og Hæstarétti. Gjafsókn fellur niður ef sýnt er fram á fyrir dómi að starfsmaður hafi ekki verið í góðri trú þegar upplýsingum var miðlað.
Samþykkt í framkvæmdastjórn 06.12.2023
Ágúst Torfi Hauksson forstjóri



