Þrír starfsmenn Kjarnafæðis Norðlenska, þau Ágúst Logi Guðmundsson, Dagmar Erla Arnþórsdóttir og Jóhanna Lilja Pálmarsdóttir, þreyttu sveinspróf í kjötiðn í dag, 27. júní, og óhætt er að segja að þau hafi staðið sig með stakri prýði.
Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík var haldin 7. febrúar sl. Þar voru heiðraðir 33 nýsveinar í 21 löggiltri iðngrein fyrir góðan árangur í námi.