Fyrirtækið Kjarnafæði Norðlenska
Um fyrirtækið
Kjötiðnaðarstöð KEA sameinaðist Kjötiðjunni á Húsavík undir nafninu Norðlenska árið 2000, en ári síðar festi Norðlenska kaup á þremur kjötvinnslum Goða. Árið 2021 sameinuðust svo fyrirtækin Kjarnafæði, Norðlenska og SAH afurðir undir nafninu Kjarnafæði Norðlenska. Fyrirtækin áttu öll rætur sínar að rekja til Norðurlands.
Starfsfólk, tækjakostur og uppsöfnuð þekking í gegnum árin eru dýrmætt veganesti til framtíðar og hjálpa okkur að tryggja það að neytendur geti ávallt stólað á gæði þegar þeir velja vörur undir okkar vörumerkjum
Staðsetningar okkar
Saga fyrirtækisins
Helstu tímamót í þróun Kjarnafæðis Norðlenska
Stofnun Kjarnafæðis
Á Akureyri af bræðrunum Eiði og Hreini Gunnlaugssonum
Kjarnafæði var stofnað þann 19. mars 1985 á Akureyri af bræðrunum Eiði og Hreini Gunnlaugssonum. Í upphafi fór starfsemi fyrirtækisins fram í litlu húsnæði, þar sem þeir bræður unnu ásamt fjölskyldum sínum. Fyrstu árin var aðaláherslan lögð á að framleiða pizzur og hrásalat.
Flutt á Fjölnisgötu 1
Stærra húsnæði á Akureyri
Ört vaxandi starfsemi fyrirtækisins kallaði á stærra húsnæði og í október 1987 flutti fyrirtækið í húsnæði að Fjölnisgötu 1 á Akureyri.
KEA sameinaðist Kjötiðjunni
Kjötiðnaðarstöð KEA sameinaðist Kjötiðjunni á Húsavík undir nafninu Norðlenska árið 2000
Þrjár kjötvinnslur Goða
Norðlenska festi kaup á þremur kjötvinnslum Goða
Flutningur á Svalbarðseyri
Húsnæði undirbúið fyrir flutning
Árið 1993 festi Kjarnafæði kaup á húsnæði á Svalbarðseyri og eftir gagngerðar endurbætur og uppbyggingu flutti fyrirtækið stóran hluta af starfsemi sinni þangað. Það var svo úr að öll starfsemi fyrirtækisins var flutt á Svalbarðseyri í febrúar árið 2014.
Norðanfiskur
Kjarnafæði í samvinnu við HB Granda og Brim fiskvinnslufyrirtækið Norðanfisk
Árið 2002 stofnaði Kjarnafæði í samvinnu við HB Granda og Brim fiskvinnslufyrirtækið Norðanfisk. Norðanfiskur hóf starfsemi sína á Akureyri en flutti 2003 upp á Akranes, þar sem fyrirtækið starfar nú. Norðanfiskur býður upp á breiða línu af frosnum fiski, fiskafurðum og svo reyktum og gröfnum laxi. Þrátt fyrir að Kjarnafæði hafi selt hlut sinn í fyrirtækinu árið 2014 er samstarfið mjög gott á milli fyrirtækjanna og selur Kjarnafæði vörur fyrir Norðanfisk.
Nonni litli og Sláturfélag Vopnfirðinga
Kjarnafæði stofnaði salat- og sósugerðina Nonna litla með Júmbó. Einnig eignaðist fyrirtækið hlut í birginum Sláturfélagi Vopnfirðinga
Árið 2004 stofnaði Kjarnafæði ásamt samlokugerðinni Júmbó, salat- og sósugerðina Nonna litla. Nonni litli er staðsett í Mosfellsbæ og framleiðir matar- og brauðsalöt, kaldar sósur og forsteiktar kjöt- og fiskibollur. Kjarnafæði seldi sinn hlut seinni hluta árs 2014 en samstarf fyrirtækjanna er enn mjög gott.
Sláturfélag Vopnfirðinga var á löngum tímum einn af birgjum Kjarnafæðis en hætti rekstri árið 2024.
Hlutur í SAH afurðir
Sölufélag Austur Húnvetninga var eitt af elstu starfandi fyrirtækjum landsins á sínu sviði
Árið 2005 eignaðist Kjarnafæði liðlega þriðjungs hlut í nýju félagi sem stofnað var um rekstur sláturhúss og kjötvinnslu Sölufélags Austur Húnvetninga á Blönduósi, SAH afurðir. Sölufélag Austur Húnvetninga var eitt af elstu starfandi fyrirtækjum landsins á sínu sviði, stofnað árið 1908. Kjarnafæði eignaðist síðar allan hlut í SAH afurðum en það er hætt rekstri í dag.
Sameining
Kjarnafæði, Norðlenska og SAH afurðir undir nafninu Kjarnafæði Norðlenska
Árið 2021 sameinuðust svo fyrirtækin Kjarnafæði, Norðlenska og SAH afurðir undir nafninu Kjarnafæði Norðlenska. Fyrirtækin áttu öll rætur sínar að rekja til Norðurlands.
Kjarnafæði Norðlenska í dag
260 starfsmenn, alþjóðlegar vottanir og fleira.
Fyrirtækið leggur mikla áherslu á vöruvöndun og gæði framleiðslunar og að veita skjóta og góða þjónustu. Fyrirtækið hefur á að skipa mjög hæfu starfsfólki og góðum tækjakosti. Það starfa um 260 manns hjá Kjarnafæði Norðlenska.
Kjarnafæði Norðlenska framleiðir flestar þær afurðir úr íslensku gæða kjöti sem í boði eru á íslenskum neytendamarkaði. Höfuðáherslur Kjarnafæði Norðlenska eru á vöruvöndun og gæði framleiðslunnar og því er markvisst stefnt að aukinni hollustu, unnið að fækkun óæskilegra aukefna og ofnæmisvalda. Kjötiðnaðarmeistarar Kjarnafæði Norðlenska hafa hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir færni sína. Kjarnafæði Norðlenska hefur hlotið A-vottun Samtaka iðnaðarins sem þýðir betri og öruggari vinnubrögð og aðstæður, ásamt því að meiri kröfur eru gerðar í eftirliti með starfsemi fyrirtækisins sem tryggir gæði til neytandans. Kjarnafæði Norðlenska var fyrsta og eina matvælafyrirtækið sem hlotið hafði A-vottun Samtaka iðnaðarins. Þá var Kjarnafæði einnig fyrsta fyrirtækið sem selur kjötafurðir til að fá alþjóðlegu vottunina fssc-22000.
Kjarnafæði Norðlenska selur framleiðslu sína um land allt og hefur náð mjög góðri fótfestu á markaðinum. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru fjölmargir og má þar helst nefna stórmarkaðina, kaupfélög, aðrar verslanir, nokkur bestu veitingahús og veisluþjónustur landsins, sem og stór og smá mötuneyti. Þá má ekki gleyma fjölmörgum leik- og grunnskólum landsins ásamt fleiri stofnunum á vegum sveitarfélaga og ríkis.



