Um Norðlenska

Kjötiðnaðarstöð KEA sameinaðist Kjötiðjunni á Húsavík undir nafninu Norðlenska árið 2000, en ári síðar festi Norðlenska kaup á þremur kjötvinnslum Goða. Árið 2021 sameinuðust svo fyrirtækin Kjarnafæði, Norðlenska og SAH afurðir undir nafninu Kjarnafæði Norðlenska. Fyrirtækin áttu öll rætur sínar að rekja til Norðurlands.


Starfsfólk, tækjakostur og uppsöfnuð þekking í gegnum árin eru dýrmætt veganesti til framtíðar og hjálpa okkur að tryggja það að neytendur geti ávallt stólað á gæði þegar þeir velja vörur undir okkar vörumerkjum

Bændur

Gott samstarf og upplýsingagjöf til bænda er Norðlenska mikilvægt. Bændur sem leggja afurðir sínar inn til Norðlenska eru starfandi um allt land, flestir á norður og austurlandi.

Vörur frá Norðlenska