Núðlur með nautakjöti, brokkolíi og teriyaki ostrusósu

Hentar því sérstaklega vel fyrir alla fjölskylduna

Það er svo einfalt og gott að gera heimagerða núðlurétti en því miður vill það oftast gleymast á mínu heimili. Rétturinn er alls ekki sterkur og hentar því sérstaklega vel fyrir alla fjölskylduna. Ég notaði nautgripaþynnurnar frá Kjarnafæði en það er alveg ótrúlega næs að eiga þær til í frysti og grípa í og nota í svona rétti. Kjötið er meyrt og gott og engin þörf á því að snyrta það eitthvað áður. Það er hægt að nota í raun hvaða grænmeti sem er, bæta við engifer eða chili fyrir sterkara bragð og leika sér með tegundir af núðlum og sósum.

Innihald

  • 1 pakkning Nautagripaþynnur frá Kjarnafæði (450-500g)
  • 1 msk. olía
  • 2 hvítlauksgeirar
  • Brokkolí eftir smekk, ég notaði ca. 1/3 af stórum haus
  • ½ rauð paprika skorin í bita
  • 2 vorlaukar fínt saxaðir
  • 150ml teriyakisósa
  • 4 msk. ostrusósa
  • 1 msk.fiskisósa
  • 1-2 msk. sojasósa
  • 1 msk. hrísgrjónaedik
  • 3 msk. vatn
  • Hálfur pakki hrísgrjónanúðlur
  • 1 msk. ristuð sesamfræ

Aðferð

  1. Saxið hvítlaukinn smátt, skerið brokkolíið, paprikuna og vorlaukinn og setjið til hliðar.
  2. Setjið vatn í meðalstóran pott og leyfið suðunni að koma upp.
  3. Hitið olíuna á pönnu og steikið nautakjötið á háum hita.
  4. Bætið grænmetinu út á og setjið teriyakisósu, ostrusósu, fiskisósu, sojasósu, hrísgrjónaedik og vatn út á. Látið malla í 5 mín.
  5. Setjið núðlurnar út í vatnið og látið sjóða í 3 mínútur.
  6. Hellið vatninu af núðlunum og setjið nautakjötið og grænmetið yfir ásamt sósunni.
  7. Berið strax fram.