Mexíkósk grillpysluveisla

Ef hefðbundnar grillaðar pylsur eru farnar að verða þreyttar þá er þessi mexíkóska grillveisla akkúrat það sem þú þarft til þess að hrista upp í pylsumálum. Hér fá bragðmiklar Mexíkó og Chilli Cheddar pylsur að njóta sín í litlum taco kökum, ásamt fersku grænmeti, sýrðum rjóma og bræddum osti. Pylsurnar eru grillaðar á teinum til að gera eldunina einfaldari og stemninguna aðeins skemmtilegri – þetta er einfaldur réttur sem allir í fjölskyldunni elska! Litríkt, skemmtilegt og alveg ótrúlega gott.
Innihald
- 1 pk. Mexíkó smápylsur frá Kjarnafæði
- 1 pk. Chilli Cheddar pylsur frá Kjarnafæði
- 1-2 pk. Litlar taco kökur
- ½ rauð paprika
- ½ græn paprika
- ½ rauðlaukur
- Kokkteiltómatar
- Iceberg
- Sýrður rjómi
- Rifinn ostur
Aðferð
- Byrjið á því að hita grillið.
- Raðið pylsunum á tvo grillteina þannig að hver pylsa fer þvert á teinana. Það er hægt að raða tegundunum til skiptis eða hafa sitthvora tegundina á teinunum, allt eftir smekk.
- Skerið grænmetið smátt og geymið til hliðar. Hér væri snjallt að leggja á borð og setja sósurnar og drykki á borðið.
- Setjið teinana með pylsunum á grillbakka ásamt, smávegis af rifnum osti og taco kökum og farið með þetta að grillinu.
- Grillið pylsurnar þar til þær fá fallega grillrönd og heitar í gegn. Þegar þær eru alveg að verða tilbúnar, stráið þá rifnum osti yfir þær.
- Hitið taco kökurnar þegar pylsurnar eru að verða klárar.
- Setjið sósur og grænmeti eftir smekk á taco kökurnar og setjið pylsurnar ofan á.