Núðlur með nautakjöti, brokkolíi og teriyaki ostrusósu
Það er svo einfalt og gott að gera heimagerða núðlurétti en því miður vill það oftast gleymast á mínu heimili. Rétturinn er alls ekki sterkur og hentar því sérstaklega vel fyrir alla fjölskylduna. Ég notaði nautgripaþynnurnar frá Kjarnafæði en það er alveg ótrúlega næs að eiga þær til í frysti og grípa í og nota í svona rétti. Kjötið er meyrt og gott og engin þörf á því að snyrta það eitthvað áður. Það er hægt að nota í raun hvaða grænmeti sem er, bæta við engifer eða chili fyrir sterkara bragð og leika sér með tegundir af núðlum og sósum.
Innihald
- 1 pakkning Nautagripaþynnur frá Kjarnafæði (450-500g)
- 1 msk. olía
- 2 hvítlauksgeirar
- Brokkolí eftir smekk, ég notaði ca. 1/3 af stórum haus
- ½ rauð paprika skorin í bita
- 2 vorlaukar fínt saxaðir
- 150ml teriyakisósa
- 4 msk. ostrusósa
- 1 msk.fiskisósa
- 1-2 msk. sojasósa
- 1 msk. hrísgrjónaedik
- 3 msk. vatn
- Hálfur pakki hrísgrjónanúðlur
- 1 msk. ristuð sesamfræ
Aðferð
- Saxið hvítlaukinn smátt, skerið brokkolíið, paprikuna og vorlaukinn og setjið til hliðar.
- Setjið vatn í meðalstóran pott og leyfið suðunni að koma upp.
- Hitið olíuna á pönnu og steikið nautakjötið á háum hita.
- Bætið grænmetinu út á og setjið teriyakisósu, ostrusósu, fiskisósu, sojasósu, hrísgrjónaedik og vatn út á. Látið malla í 5 mín.
- Setjið núðlurnar út í vatnið og látið sjóða í 3 mínútur.
- Hellið vatninu af núðlunum og setjið nautakjötið og grænmetið yfir ásamt sósunni.
- Berið strax fram.