Eldbakaðar súrdeigspítsur með litlu pepperóní, skinku, rauðlauk og chili-hunangi

Klassísk pizza á einfaldan hátt

Ef þú ert ein/n þeirra fjölmörgu sem átt pítsuofn þá mæli ég með þessum! Þegar þú ert þar að auki með gott súrdeigsdeig og rétt álegg er lítið mál að búa til pítsur sem keppa við þær allra bestu á veitingastöðum. Hér erum við með klassíska samsetningu sem er okkar allra uppáhalds: pepperóní, skinka, ferskur mozzarella og rauðlaukur.


Punkturinn yfir i-ið er svo chili hunangið – sem dreypt er yfir heita pítsuna þegar hún kemur úr ofninum. Sósan er úr niðursoðnum tómötum og sjávarsalti og er að mínu mati besta pítsusósa sem til er. Krakkarnir fá svo alltaf sína pítsu sem er bara með pepperóní og osti - fullkomið pítsukvöld þar sem allir fá eitthvað fyrir sinn snúð… eða pítsu!

Innihald

  • 4 kúlur súrdeigspítsudeig
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • ½ tsk. sjávarsalt
  • Pizzuostur, magn eftir smekk
  • Ferskur mozzarella, magn eftir smekk
  • 1 pk. Lítið pepperóní frá Kjarnafæði
  • 1 pk. Pepperóní frá Kjarnafæði
  • 1 pk. Pizzuskinka frá Kjarnafæði
  • ½ rauðlaukur, smátt saxaður
  • Chili hunang – keypt eða heimagert, magn eftir smekk

Aðferð

  1. Hitið pítsuofninn upp í hámarkshita.
  2. Setjið niðursoðnu tómatana í sigti og látið vatnið renna af þeim í 10-15 mín.
  3. Hellið þá tómötunum í skál og setjið sjávarsalt saman við. Kreistið þá með hreinum höndum þar til þeir verða vel maukaðir. Ég mæli ekki með því að gera þetta í blandara því áferðin og bragðið verður ekki það sama.
  4. Skerið skinkuna og í litla bita og rauðlaukinn smátt. Látið vatnið renna af mozzarella ostinum og kreistið létt í eldhúsbréfi.
  5. Fletjið út pítsudeig og með hröðum höndum smyrjið það með sósunni, stráið því næst osti yfir, klípið bita af mozzarella kúlunni þar yfir, stráið þá pepperóníi, skinku og rauðlauk yfir ostinn. Færið pítsuna upp á pítsuspaða og bakið í pítsaofninum þar til ykkur finnst hún verða tilbúin.
  6. Dreifið chili hunangi yfir heita pítsuna.
  7. Ég geri svo alltaf pepperónípítsur fyrir krakkana sem vilja ekki flækja hlutina neitt. Bara ostur og pepperóní og þau verða alsæl!