Grillað lambaprime með gremolata aioli og stökkum kartöfluteningum

Fljótleg en sparileg máltíð
Það er fátt sumarlegra en góð grillsteik með bragðmikilli sósu. Hér para ég saman lungamjúkt lamba prime með hvítlauks og rósmarín marineríngu sem er grillað og gremolata aioli – sem er frískleg og einföld sósa gerð úr majónesi, sítrónu, steinselju og hvítlauk sem sameinar mýkt aioli og ferskleika gremolata. Kartöfluteningarnir eru bakaðir með kryddum og hvítlauksolíu og passa fullkomlega með bæði kjötinu og sósunni. Fljótleg en sparileg máltíð sem hentar bæði í sumarmatarboðin og á fallegu sumarkvöldi heima við.
Innihald
- 4 stk. lamba prime frá Norðlenska
- Salt og nýmalaður svartur pipar
Gremolata aioli sósa
- 120g majónes
- 2 hvítlauksrif
- 1 lúka fersk steinselja, um 4-5 msk.
- Rifinn sítrónubörkur af 1 sítrónu
- Safi úr ½ sítrónu
- Salt og pipar
Kartöfluteningar
- 500g kartöflur, skornar í teninga
- 1 msk. hvítlauksolía
- 1 tsk. laukduft
- 1 tsk. paprikuduft
- Salt eftir smekk
Aðferð
- Takið kjötið úr kæli ca. 45 mín áður en þið ætlið að grilla það. Kveikið upp í grillinu og leyfið því að ná góðum hita.
- Útbúið gremolata aioli með því að setja öll hráefnin í litla matvinnsluvél og geymið í kæli.
- Það er gott að útbúa kartöflurnar á meðan kjötið bíður. Skerið þær í litla bita og setjið í skál. Dreifið hvítlauksolíunni yfir og hristið saman. Stráið kryddum yfir og blandið vel saman við kartöflurnar. Bakið þær í airfryer í 15 mín á 200° eða bakaraofni með blæstri á sama hita en tíminn er talsvert lengri þar eða um 30 mín.
- Setjið lamba prime stykkin á mitt grillið og haldið grillinu í 250°C með minni hita beint undir kjötinu. Grillið þar til kjarnhiti nær 58°C. Takið það þá af og leyfið að hvíla í 10 mín.
- Berið fram með kartöfluteningunum, gremolata aioli sósunni, fersku salati og jafnvel silkimjúku rauðvíni.