Takk fyrir okkur á Stóreldhúsinu 2026!
Kjarnafæði þakkar kærlega fyrir sig á Stóreldhúsinu 2026, sem fór fram í Laugardalshöll dagana 5.–6. nóvember. Við áttum ánægjulega daga á sýningunni þar sem við kynntum fjölbreytt vöruúrval okkar og hittum fjölda fólks úr matvæla- og veitingageiranum.
Það var virkilega gaman að hitta viðskiptavini, samstarfsaðila og annað fagfólk, spjalla um vörurnar okkar og eiga góðar stundir saman.
Við þökkum öllum þeim sem litu við á básnum okkar kærlega fyrir komuna og hlökkum til áframhaldandi samstarfs!


























