Svínakótilettur í suðrænni kryddblöndu með rabbabara-chimichurri

Kraftmikil svínakótiletta

Súrsætur, gerjaður rabbabarinn + appelsínan + fersku kryddjurtirnar eru það sem lyftir þessari annars kraftmiklu svínakótilettu. Ekki vera feimin við chimichurrið það á að vera nóg af því.

Fyrir kótiletturnar og kartöflurnar

  • 4 svínakótilettur í suðrænni kryddblöndu frá Kjarnafæði
  • 20 kartöflur, helst litlar sætar kartöflur
  • Ólífuolía
  • Salt
  • Pipar
  • 3 greinar rósmarín
  • 3 hvítlauksgeirar, létt kramdir

Aðferð

  1. Hitið grillið vel áður en þið byrjið að elda.
  2. Undirbúið kartöflurnar.
    Skerið kartöflurnar í tvennt. Setjið þær í eldfast mót með skurðinn niður og veltið upp úr góðri skvettu af ólífuolíu. Kryddið með salti og pipar.
  3. Bætið rósmaríninu og léttkramdum hvítlauksgeirunum út í. Setjið kartöflurnar á grillið og lokið.
  4. Gerið chimichurri-sósuna.
  5. Grillið kótiletturnar.
    Þegar kartöflurnar eru nánast tilbúnar fara svínakótiletturnar á heitt grillið. Grillið þær þar til þær eru fallega brúnaðar að utan og eldaðar í gegn, án þess að ofelda þær.
  6. Berið fram.
    Setjið kartöflurnar á stórt fat, leggið grillaðar kótiletturnar yfir og
    hellið ríkulega af rabbabara-chimichurri yfir kjötið. Berið fram með góðu, fersku salati.


Rabbabara-chimichurri

  • 1 lítill stikill rabbabari, gerjaður í 2% saltpækli
  • 3 grillaði hvítlauksgeirar (stelið frá kartöflunum) 
  • 1 búnt steinselja
  • 1 góð handfylli mynta
  • Börkur af 1 appelsínu
  • Safi úr ½ appelsínu
  • Ólífuolía, eftir smekk
  • Salt og pipar eftir þörfum

Aðferð

  1. Setjið steinselju, myntu, ólífuolíu, appelsínubörk, grillaða hvítlaukinn frá kartöflunum og gerjaðan rabbabara í mortél og myljið saman þar til blandan verður að grófu, olíukenndu mauki.
  2. Bætið appelsínusafa saman við eftir smekk.
  3. Ef þið nennið ekki baráttunni við kryddjurtirnar og mortélið er matvinnsluvél alveg fullkomin leið.
  4. Ekki mauka sósuna of fínt – það er gott að hafa smá áferð.



Gerjaður rabbabari

Best er að undirbúa rabbabarann um viku áður.

Skerið rabbabarann í bita og setjið í 2% saltpækil. Það er 2% salt miðað við samanlagða þyngd vatns og rabbabara. Geymið við stofuhita og leyfið honum að gerjast í um viku.

Látið rabbabarann „ropa“ einu sinni á dag með því að losa aðeins um loftið í ílátinu. Þegar hann er orðinn hæfilega súr og bragðgóður er hann tilbúinn.