Saltkjöt og baunir unaðslegur klassíker á sprengidaginn

Seðjandi réttur sem yljar bæði maga og sál.
Saltkjöt og baunir eru óumdeilanlegur klassíker á sprengidaginn og ómissandi fyrir marga. Dagurinn markar síðasta daginn fyrir lönguföstuna og hefðin segir að þá eigi að borða sig vel saddan – helst af saltkjöti, baunum og rótargrænmeti í ríkulegri og bragðmikilli súpu.
Þessi uppskrift er byggð á góðu, íslensku saltkjöti og hægelduðum baunum sem fá að malla lengi með grænmeti, kryddum og beikoni. Útkoman er unaðslega seðjandi réttur sem yljar bæði maga og sál. Fullkomið til að njóta með fjölskyldu og vinum!
Uppskrift frá Gulur Rauður Grænn & Salt
Innihald
- 1,5 kg saltkjöt frá Kjarnafæði
- 3 lárviðarlauf
- 1 tsk svört piparkorn
- 1 laukur, skorinn í tvennt
Aðferð
- Setjið saltkjötið í stóran pott og látið vatn fljóta vel yfir. Hitið að suðu og takið frá alla froðu sem myndast.
- Þegar suðan er komin upp lækkið þið hitann og bætið lárviðarlaufum, lauk og piparkornum saman við.
- Látið kjötið malla í 2 klst við vægan hita.
Súpa
- 500 g gular hálfbaunir, látnar liggja í bleyti yfir nótt
- 300 g gulrætur, skornar í bita
- 1 blaðlaukur, skorinn í sneiðar
- 1 laukur, saxaður
- 200 g beikon, skorið í bita
- 3 lárviðarlauf
- 1 msk piparkorn
- 1 msk timian
- 1-2 rófur
- 3-4 kartöflur
Aðferð
- Látið baunirnar liggja í bleyti yfir nótt. Skolið vatnið frá og látið baunirnar í stóran pott. Hellið köldu vatni yfir og látið magnið vera tvöfalt á við baunirnar. Hitið við vægan hita og takið alla froðu sem kemur á yfirborðið. Látið malla í klukkustund eða þar til baunirnar eru farnar að maukast
- Bætið beikoni, gulrótum, lauk, lárviðarlauf, timian og pipar saman við.
- Ausið soði frá saltkjötinu saman við súpuna og smakkið til.
- Látið malla í tæpa klukkustund eða þar til grænmetið er farið að mýkjast.
- Afhýðið kartöflur og rófur og sjóðið í sér potti.
- Berið kjötið fram með súpunni eða skerið í bita og bætið saman við.
- Bætið einnig rófum og kartöflum út í súpuna.





