Sveitabjúgu með uppstúf, kartöflum og grænum baunum

Nostalgían mætir hversdagsleikanum
Bjúgu eru svona matur tikkar í mörg box, nostalgían að mæta hversdeginum en samt smá spari því það er eitthvað pínu hátíðlegt við þau þegar þau eru borin fram með jafningi og grænum baunum. Ég ætla ekki að segja jóla… en þið vitið hvað ég á við.
Eldamennskan er einföld – smá kúnst kannski að passa að hún sé kekkjalaus en annars sér þetta um sig sjálft.
Uppskrift frá Valgerði Grétu G. Gröndal
Innihald
- 4 Sveitabjúgu frá Kjarnafæði
- Grænar baunir
- Soðnar kartöflur, magn eftir smekk
Aðferð
- Setjið bjúgun í pott og látið kalt vatn renna í pottinn þannig að það fljóti vel yfir. Leyfið suðunni að koma upp. Sjóðið í 25 mínútur eftir að suðan kemur upp.
- Sjóðið það magn af kartöflum sem þið teljið ykkur þurfa.
- Útbúið uppstúfinn á meðan.
- Takið bjúgun upp úr pottinum þegar þau eru soðin. Fjarlægið plastið og berið fram með kartöflum, jafningi og grænum baunum.
Uppstúfur
- 50g smjör
- 50g hveiti
- 500 ml. nýmjólk
- 1 msk. sykur
- ¼ tsk. múskat
- Hvítur pipar og salt eftir smekk
Aðferð
- Setjið smjörið í rúmgóðan pott og bræðið við miðlungs hita.
- Bætið hveitinu saman við þegar smjörið er bráðið og hrærið rösklega í með písk. Leyfið smjörbollunni að steikjast í smástund áður en smá slettu af mjólk er hellt saman við. Hrærið þá vel og bætið aftur smávegis af mjólkinni saman við.
- Haldið áfram að bæta mjólkinni við í smá skömmtum og hrærið vel á milli svo jafningurinn verði kekkjalaus.
- Setjið sykur, múskat, hvítan pipar og salt saman við og smakkið til.
- Afhýðið kartöflurnar og setjið út í jafninginn.




