Innköllun á Krónu pylsum 10 stk

Kjarnafæði Norðlenska, í samráði við Krónuna og Matvælastofnun, innkallar Krónu pylsur 10 stk með síðasta notkunardag 27.08.2026.


Ástæða innköllunar

Vegna prentvillu á hluta framleiðslulotunnar birtist innihaldslýsing ekki á umbúðum vörunnar. Þar af leiðandi er sojaprótein, sem er ofnæmis- og óþolsvaldur, ekki tilgreint á umbúðunum. Varan inniheldur sojaprótein sem getur valdið ofnæmisviðbrögðum hjá einstaklingum með ofnæmi eða óþol fyrir soja.


Upplýsingar um vöruna

Vöruheiti: Krónu pylsur 10 stk

Framleiðandi: Kjarnafæði Norðlenska

Lotunúmer: 758-26210-2

Síðasti notkunardagur: 27.08.2026

Dreifing: Verslanir Krónunnar


Mikilvægar upplýsingar til neytenda

Neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir soja eru beðnir um að neyta vörunnar ekki. Þeir geta annað hvort fargað vörunni eða skilað henni í næstu verslun Krónunnar og fengið fulla endurgreiðslu.


Kjarnafæði Norðlenska biðst innilegrar velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þakkar viðskiptavinum fyrir skilninginn.


Mynd af réttri innihaldslýsingu og mynd af vanmerktri vöru fylgja hér að neðan.