Melónu- og lambafilletsalat fyrir tvo

Fjölbreyttar pylsur fyrir glæsilega veislu!
Ef þú hefur ekki prófað að para lamb og melónu saman er kominn tími til. Í þessari uppskrift fær Black Garlic-marínerað lambafillet frá Kjarnafæði að njóta sín með ferskum sumarhráefnum sem gefa réttinum bæði lit og bragð.
Vatnsmelóna, granatepli, mynta og fetaostur skapa skemmtilega andstæðu við kryddað lambakjötið og útkoman er einföld uppskrift sem kemur skemmtilega á óvart.
Lambafillesalat
- 1 stk Kjarnafæði Black Garlic-marínerað lambafillet
- 1 límóna
- ½ granatepli
- ½ lítil vatnsmelóna
- 3 kúfaðar matskeiðar af skyri
- 5 matskeiðar fetaostur (má vera úr krukku)
- ½ gúrka
- 1 rauðlaukur
- 200 g rucola
- Nokkur blöð fersk mynta
- Ólífuolía
- Salt
- Nýmalaður pipar
Aðferð
- Byrjið á að skera melónuna í tvennt og skafa eða kúla innan úr annarri helmingnum í hæfilega stóra bita. Reynið að safna öllum melónusafanum – hann fer í dressinguna. Hinn helmingurinn verður svo skálin sem salatið er borið fram í.
- Skrælið rauðlaukinn, skerið hann smátt frá toppi til rótar og blandið honum út í dressinguna. Það tekur mesta bitið úr lauknum á meðan þið klárið restina.
- Skerið síðan um ¼ af gúrkunni í frekar grófa bita og takið fræin úr granateplinu.
Lambið
- Skerið nokkra skurði í fiturönd lambafilletsins.
- Setjið lambið á rjúkandi heitt grill. Ef það shizzlar ekki um leið og það snertir ristina, þá er grillið ekki nógu heitt. Lokið grillinu og grillið þar til lambið er fallega brúnað en enn örlítið rautt í miðjunni. Ég vil hafa það þannig – en you do you.
- Látið kjötið hvíla í nokkrar mínútur áður en það er skorið í sneiðar.
Samsetning
- Veltið rucola upp úr hluta af skyrdressingunni og blandið saman við melónu, gúrku og granateplafræ.
- Setjið salatið í melónuskálina og leggið sneiðarnar af lambinu ofan á.
- Ljúkið réttinum með fetaosti, nokkrum laufum af ferskri myntu, góðri bunu af ólífuolíu, og smá salti og pipar.
Berið fram strax á meðan lambið er enn volgt.
Skyrdressing
- 3 kúfuðum matskeiðum af skyri
- Börknum af allri límónunni
- Safanum úr hálfri límónu
- Melónusafanum
- Um 7 cm af gúrku, fínt rifinni
- 2 góðum klípum af salti
- Vel af svörtum pipar
Aðferð
- Hrærið vel saman






