Rauðbeðusalat

Meðlæti Kristins
Í þessum þætti Kjarnafæði x Soð töfrar Kristinn fram rauðbeðusalat sem er frábært meðlæti með góðu Heiðarlambi. Sætt bragð rauðbeðanna og appelsínanna fær að njóta sín með geitaosti, stökkum heslihnetum og ljúffengri dressing. Hér finnur þú uppskriftina og öll helstu atriðin til að útbúa salatið heima!
Hráefni
- 800 g rauðbeður
- 3 appelsínur
- 180 g geitaostur
- 60 g heslihnetur (Má sleppa, en bara ef þú gleymir þeim heima eins og ég)
- 50 g klettasalat
- Timían
Salatdressing
- 4 msk ólífuolía
- 1,5 msk gott edik (ég notaðist við Geuze edik)
- 1,5 msk appelsínusafi
- 1.5 tsk Dijon-sinnep
- 1–2 tsk piparrót
- 1,5 tsk hunang
- Salt og svartur pipar
Aðferð
- Pakkaðu rauðbeðunum í álpappír og bakaðu við 190°C í 50–70 mínútur, eftir stærð.
- Láttu kólna aðeins, afhýddu og skerðu í báta.
- Afhýddu appelsínurnar og skerðu í fallega báta.
- Ristaðu heslihneturnar á þurri pönnu og saxaðu gróft, takið hneturnar af pönnunni um leið og þær eru komnar með lit, þær halda áfram að dökkna á pönnunni þó pannan sé ekki á hita.
- Blandaðu saman ólífuolíu, ediki, appelsínusafa, Dijon, piparrót og hunangi.
- Smakkaðu til með salti og pipar.
- Raðaðu klettasalati, rauðbeðum, appelsínum, geitaosti og salati á fat.
- Helltu dressingunni yfir og toppaðu með heslihnetum og timían.






