Rauðvínssósa

Meðlæti Kristins

Bragðmikil rauðvínssósa sem passar einstaklega vel með góðu Heiðarlambi. Sósan fær sitt góða bragð úr rauðvíni, ferskum kryddjurtum og smjöri sem gefur henni silkimjúka áferð. Hér finnur þú uppskriftina og getur prófað hana heima!

Hráefni

  • 700 ml nautakraftur
  • 500 ml þurrt rauðvín
  • 3 skalottlaukar, skorinn gróft
  • 1 gulrót, skorin gróft
  • 1 grein rósmarín
  • 2 greinar timían
  • 3 lárviðarlauf
  • 2 tsk tómatpúrra
  • 40 g kalt smjör
  • 1 tsk rauðvínsedik (ef þarf)
  • Soð og safi af lambinu

Aðferð

  • Mýktu skalottlauk og gulrót í smá smjöri á pönnu.
  • Bættu tómatpúrru við og steiktu í eina mínútu.
  • Helltu rauðvíninu út á.
  • Bættu rósmaríni, timían og lárviðarlaufi út í.
  • Láttu sjóða niður þar til um þriðjungur er eftir.
  • Bættu lambakraftinum við og láttu malla þar til sósan hefur náð léttri, þekjandi áferð.
  • Sigtaðu sósuna í gegnum fínt sigti.
  • Bættu lambasoðinu við.
  • Rétt fyrir framreiðslu skaltu þeyta köldu smjöri saman við sósuna.
  • Smakkaðu til með salti, pipar og örlitlu rauðvínsediki ef þarf.


Mikilvægt: Ekki láta sósuna sjóða eftir að kalda smjörið hefur verið þeytt saman við.

Tengdar uppskriftir