Kartöflu-Anna

Meðlæti Kristins

Í nýjasta þættinum af Kjarnafæði x Soð kynnum við Kartöflu-Annu, ljúffengan kartöflurétt sem passar einstaklega vel með góðu Heiðalambi. Kartöflur, smjör og ferskar kryddjurtir leika aðalhlutverkið. Hér finnur þú uppskriftina og getur prófað Kartöflu-Annu heima við!

Hráefni

  • 1,25 kg kartöflur
  • 170 g smjör
  • Slatti salt (því kartöflur eru farartæki fyrir smjör og salt)
  • Nýmalaður svartur pipar
  • Timían lauf
  • Rósmarín nálar

Aðferð

  • Flysjið kartöflurnar og skerðu í þunnar sneiðar, um 2mm, helst á mandolín, en passið puttana, mandolín elskar putta.
  • Ekki skola kartöflurnar eftir niðurskurð – við viljum halda sterkjunni.
  • Bræðið smjörið
  • Með rósmarín vendi, smyrjið eldfast mót
  • Raðaðu kartöflunum í lög, penslaðu hvert lag með smjöri og kryddaðu með salti, pipar, rósmarín og timían.
  • Þrýstu létt á kartöflurnar.
  • Settu bökunarpappír yfir kartöflurnar og lokaðu svo þéttingsfast með álpappír. Bakaðu við 190°C í 35–40 mínútur.
  • Taktu lokið af og bakaðu áfram í 20–25 mínútur þar til yfirborðið er fallega gullið og stökkt.
  • Láttu standa í nokkrar mínútur og hvolfdu úr forminu.

Tengdar uppskriftir