Pólskar grillpylsur með kartöflumús og snakki

Fjölbreyttar pylsur fyrir glæsilega veislu!
Pylsur hafa lengi verið ómissandi hluti af íslenska grillsumrinu og úrvalið hefur sjaldan verið meira. Kjarnafæði býður upp á fjölbreyttar pylsur sem henta jafnt fyrir fljótlegan kvöldverð sem glæsilega grillveislu.
Þau sem vilja prófa eitthvað nýtt geta sótt innblástur í nýtt myndband þar sem áhrifavaldurinn Kristinn Soð útbýr Pólskar pylsur frá Kjarnafæði á óhefðbundinn hátt.
Innihald fyrir fjórar pylsur
- 4 Kjarnafæði pólskar pylsur
- 4 pylsubrauð
- Amerískt sinnep
- Súrkál
- Kartöflumús (þykk)
- Steiktur laukur
- Ferskur graslaukur, smátt saxaður
- Salt & Vinegar snakk
Aðferð
- Byrjið á að útbúa kartöflumús. Hún á að vera þykk og góð, notið ykkar uppáhalds uppskrift.
- Grillið pólsku pylsurnar þar til þær springa. Ekki taka þær af grillinu fyrr – þetta skiptir öllu máli.
- Hitið pylsubrauðin stuttlega á grillinu svo þau verði volg og örlítið stökk að utan.
- Raðið pylsunni saman í þessari röð:
- Amerískt sinnep
- Súrkál
- Grilluð Kjarnafæði pólsk pylsa
- Góð skeið af kartöflumús
- Steiktur laukur
- Smátt saxaður graslaukur
- Að lokum: myljið ríkulega af Salt & Vinegar snakki yfir.
- Berið fram strax. og klárið i fjórum bitum (samkvæmt Steinda Jr)






