Nýtt fagfólk bætist í öflugan hóp Kjarnafæðis Norðlenska


Þrír starfsmenn Kjarnafæðis Norðlenska, þau Ágúst Logi Guðmundsson, Dagmar Erla Arnþórsdóttir og Jóhanna Lilja Pálmarsdóttir, þreyttu sveinspróf í kjötiðn í dag, 27. júní, og óhætt er að segja að þau hafi staðið sig með stakri prýði.
Sveinspróf í kjötiðn samanstendur af bæði bóklegu og verklegu prófi. Í verklega hlutanum þurfa nemar meðal annars að úrbeina nautalæri, hálfan grís, heilt lamb og hangiframpart. Hangiframparturinn er síðan vafinn á „gamla mátann“ og jafnframt saga nemarnir heilt lamb í svokallaða sjö parta sögun. Próftakar hluta dilkinn niður, úrbeina og fullvinna í viðurkenndar smásölueiningar sem fara í kjötborð verslana. Þá útbúa nemarnir einnig eina hrápylsu, eina farspylsu og eina lúxuspylsu, en lúxuspylsan má hvorki innihalda sterkju né bindiefni. Að auki senda þeir inn lúxusskinku sem metin er af prófdómurum.
Þau voru öll afar ánægð með afraksturinn og Kjarnafæði Norðlenska óskar þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega áfanga. Fyrirtækið er afar stolt af því að hafa þetta öfluga fagfólk í sínum röðum.



