Ágúst og Elínborg nýsveinar í kjötiðn fá viðukenningu fyrir góðan námsárangur

Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík var haldin 7. febrúar sl. Þar voru heiðraðir 33 nýsveinar í 21 löggiltri iðngrein fyrir góðan árangur í námi. Meðal þeirra voru tveir nýsveinar frá Kjarnafæði Norðlenska og VMA, þau Ágúst og Elínborg en þau tóku sveinspróf í kjötiðn vorið 2025 og starfa áfram hjá fyrirtækinu. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn. Á meðfylgjandi mynd eru f.v. Frú Halla Tómasdóttir forseti Íslands, Eínborg Bessadóttir kjötiðnaðarmaður, Grétar Þór Björnsson kjötiðnaðarmeistari, Ágúst Sigvaldason kjötiðnaðarmaður, Hörður Erlendsson kjötiðnaðarmeistari og Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Kjarnfæði Norðlenska leggur áherslu á fagmennsku og gæði í matvælaframleiðslu og við fögnum því að fá þau í hóp kjötiðnaðarmanna hjá fyrirtækinu.