Sígild uppskrift: Saltkjöt og baunir á sprengidaginn

Saltkjöt og baunir, túkall!
Mörgum finnst ómissandi að fá sér saltkjöt og baunir á sprengidaginn en mikla eldamennskuna fyrir sér. Það er alger óþarfi því það er ótrúlega lítið mál, eiginlega matur sem eldar sig sjálfur fyrir utan smá handavinnu við að skera kjötið og grænmetið. Svo er þetta einmitt matur sem er jafnvel betri daginn eftir líkt og íslensk kjötsúpa og því er búið að redda kvöldmatnum fyrir tvo daga!
Uppskriftin er stór en hana má auðveldlega minnka um helming.
Saltkjöt og baunir, túkall!
Uppskrift frá Valgerði Grétu G. Gröndal
Innihald
- 1,8kg saltkjöt frá Kjarnafæði, ég blandaði saman völdu og annars flokks.
- 400g gular baunir
- 3 l. vatn
- 300g gulrætur
- 600g rófur
- ½ blaðlaukur, hvíti hlutinn
- 1 laukur
- 4 sneiðar beikon
- 1 grænmetisteningur
- 1 lambateningur
- 1 msk. þurrkuð steinselja
- 1/2 tsk. hvítur pipar
Aðferð
- Byrjið á því að setja baunirnar í bleyti daginn áður. Þá setjið þið þær í skál og fyllið hana af vatni svo það fljóti vel yfir baunirnar. Setjið lok eða plastfilmu yfir og geymið á borði við stofuhita.
- Setjið baunirnar í sigti og skolið vel með köldu vatni. Setjið þær í stóran pott og hellið vatninu út í ásamt grænmetis- og lambatening. Hleypið upp suðu og fleytið froðunni af. Látið baunirnar sjóða í 35-40 mín. Ef baunirnar hafa ekki verið látnar í bleyti er passlegt að sjóða þær tvisvar sinnum lengur. Á meðan baunirnar sjóða er gott að undirbúa kjötið og grænmetið.
- Takið kjötið úr pakkningunum og skolið vel með köldu vatni. Snyrtið saltkjötið og skerið í litla bita, mér finnst það betra en að hafa stór stykki í súpunni.
- Skerið grænmetið og beikonið í litla bita.
- Þegar baunirnar hafa soðið í þennan tíma, setjið þá kjötið, grænmetið og beikonið í pottinn ásamt steinselju og pipar. Sjóðið áfram í 30 mínútur, fleytið froðunni af þegar hún byrjar að myndast.
- Berið fram með kartöflum ef vill en einnig er hægt að bæta þeim í súpuna.





