Steiktar kjötfarsbollur með brúnni sósu

Bolla, bolla, bolla!

Á bolludag er gamalgróin hefð að fá sér bollur og helst sem flestar! Hérna erum við þó ekki með rjómabollur heldur ekta gamaldags steiktar kjötfarsbollur sem henta svona ljómandi vel á mánudegi þegar við nennum helst ekki að hafa of mikið fyrir eldamennskunni. Þær koma tilbúnar í poka og það er svo geggjað að henda þeim beint í airfryer.


Það er auðvitað hægt að stytta sér enn frekar leið með því að vera með forsoðnar kartöflur og sósu úr pakka og ekki dæmi ég!



Annars mæli ég sérstaklega með því fyrir minni heimili að skoða úrvalið frá Kjarnafæði af lausfrystum, tilbúnum kjötvörum. Það er mikill kostur að geta tekið bara út úr frysti það magn sem þarf í stað þess að sitja uppi með risa pakkningar sem nýtast illa.

Uppskrift frá Valgerði Grétu G. Gröndal

Innihald

  • 750g Steiktar kjötfarsbollur frá Kjarnafæði
  • 500g kartöflur
  • Grænar baunir
  • Rauðkál

Aðferð

  1. Byrjið á því að setja kartöflur í pott og sjóðið þar til þær eru mjúkar í gegn.
  2. Takið bollurnar úr frysti og hitið í airfryer í 15-18 mín við 180°C.
  3. Útbúið sósuna.
  4. Berið kjötfarsbollurnar fram með soðnum kartöflum, grænum baunum, rauðkáli og brúnni sósu.

Brún sósa

  • 1 lítill laukur
  • 1 msk. smjör
  • 1 nautateningur
  • 1 grísateningur
  • 500 ml. vatn
  • Sósujafnari
  • Sósulitur
  • Salt og pipar eftir smekk

Aðferð

  1. Saxið laukinn smátt. Setjið smjör í skaftpott og steikið laukinn upp úr smjörinu þar til hann er orðinn mjúkur.
  2. Bætið vatninu saman við ásamt teningum og hleypið upp suðunni. Leyfið soðinu að sjóða í 2-3 mínútur.
  3. Bætið þá sósulit og sósujafnara saman við, magn af sósujafnara fer eftir því hve þykka þið viljið hafa sósuna.
  4. Smakkið til með salti og pipar.
  5. Bætið rjómanum út í rétt áður en sósan er borin fram.