SOUS VIDE LAMB

Í MATINN?

Sous vide eldaða lambið frá okkur er fullelduð vara sem þarf einungis að hita áður en hún er borin fram. Þú getur hitað kjötið á grilli, í ofni, Air Fryer eða á pönnu – eftir því hvað hentar hverju sinni. Fljótlegt, þægilegt og einstaklega bragðgott.


Sous vide er eldunaraðferð þar sem matur er eldaður við lágt og jafnt hitastig í lengri tíma. Lambakjötið okkar er sett í loftþéttan poka og síðan eldað við nákvæmt hitastig, yfirleitt á bilinu 65°C–75°C, eftir því hvaða hluti lambsins er um að ræða.


Þessi aðferð tryggir jafna eldun í gegnum allt kjötið og hjálpar til við að halda bæði safa og bragði inni í kjötinu. Útkoman er meyrt og safaríkt lamb sem er tilbúið þegar þér hentar – án þess að þurfa að hafa áhyggjur af ofeldun.


Við mælum með að klára eldunina á grilli, pönnu eða í heitum ofni til að fá fallega steikta og bragðmikla skorpu utan á kjötinu á meðan kjötið helst mjúkt og jafnt eldað að innan.

Nákvæm eldun

Meira bragð

Þegar þér hentar!

FRAMSKANKAR í BBQ PIPARMIX

Lágeldaðir framskankar með bragðmiklu BBQ piparmixi sem verða einstaklega mjúkir og safaríkir við sous vide eldunina. Tilvalið fyrir þá sem vilja kraftmikið bragð og hægeldaða upplifun án fyrirhafnar.

Innralæri steikarkryddað

Klassískt og safaríkt innralæri kryddað með steikarkryddi sem dregur fram náttúrulegt bragð lambsins. Einföld og þægileg lausn sem hentar bæði hversdags og við sérstök tilefni.

Úrbeinuð og einstaklega meyr sirloin steik með djúpu og ríkulegu bragði frá black garlic krydduninni. Fullkomin á grillið eða á heita pönnu fyrir fallega steikta áferð.